Heimska sjónvarpsféttamanns

Í sjónvarpsfréttum kvöldsins er Davíð lagt það til lasts, að hafa í viðtali við erlenda sjónvarpsstöð sagt að íslensku bankarnir væru ekki að fara á hausinn. Hvers konar fífl er þessi fréttamaður? Hann virðist ekki vita eða skilja, að það var beinlinis emættisskylda Davíðs að ljúga til um þetta. Ef seðlabankastjóri  hefði sagt sannleikann opinberlega hefði það sjálfkrafa sett bankana og allt íslenska fjármálakerfið á hausinn samdægurs.

Þetta er enn ein staðfesting á því hvers konar undirmálslið starfar við íslenska fjölmiðla. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekkert kemur á óvart þegar RÚV á hlut.

Ekta stjórnarsinnar.

Andrés Ingi (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 19:32

2 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Skil frústrasjón þína þegar kemur að íslenskri blaðamennsku. Þáttur fjölmiðla í efnahagshruninu og þá sérstaklega hvernig fjölmiðlar brugðust algerlega í því að afhjúpa bullið þegar allt þandist hér út verður dimmur blettur á íslandssögunni.

Þór Ludwig Stiefel TORA, 4.7.2009 kl. 20:41

3 identicon

Auðvitað laug hann og gerir enn ..............kemst upp með það á meðan fólk telur það kost en ekki löst að segja aldrei satt..hann sagði Ríkisstjórninni það sama á þessum tíma að sögn Geirs Haarde.....Mikill maður Davíð..mikill maður

Tryggvi Marteinsson (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 22:19

4 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Til Gunnars og Tryggva: Heimskan er sterkasta aflið í heiminum. Engar pillur duga á heimskuna. Engar sprautur. Engar meðferðir, ekki einu sinni "huglæg atferlismeðferð". Ekki þýðir að segja heimskingjanum til, hann er of heimskur til að skilja, misskilur allt og dregur alltaf kolrangar ályktanir. Við heimskingjann er ekkert hægt að gera nema fórna höndum. Heimskan er ólæknandi og ekkert læknar heimskuna nema dauðinn.

Kveðja, Vilhjálmur 

Vilhjálmur Eyþórsson, 4.7.2009 kl. 22:25

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

RÚV tók afskaplega einkennilega á málinu svo ekki sé meira sagt.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 5.7.2009 kl. 09:44

6 Smámynd: Kristján Sigmundsson

Er þetta ekki allt stór lygi? Allir ljúga til varnar hverju? jú eigin skinni ,er nema von að almeningur eigi erfit með treista ráðamönum þessarar þjóðar .Lesið Préd 2 k 12-14 eigið góðan dag

Kristján Sigmundsson, 5.7.2009 kl. 12:07

7 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Skarplega athugað. Sérstaklega með tilliti þeirrar gagnrýni að DO hefði verið of laus tungan. Hitt er svo annað mál að það virðast fylgja starfslýsingu og vera ein af aðal hæfniskröfum sbr. atvinnuumsóknareyðublöð fréttamanna, að þeir fylli það skilyrði að vera aljgör fífl.

Þorri Almennings Forni Loftski, 5.7.2009 kl. 16:27

8 Smámynd: Gústaf Níelsson

Það er erfitt að vera í þeirri stöðu að geta ekki sagt allan sannleikann. Davíð var í slíkri stöðu og því fylgir nokkur siðferðislegur vandi. En hin blóðslefandi hýena lætur sér slíkan vanda í léttu rúmi liggja, hún rennur í slóðina í von um fóður. En hið fornkveðna er klassískt:"Spyrjum að leikslokum".

Gústaf Níelsson, 14.7.2009 kl. 02:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband