En hann var ekki dæmdur fyrir skoðanir sínar, sem væri nógu slæmt, heldur fyrir að benda á óhagganlega staðreynd, sem er ljós hverju ómálga, óinnrættu barni á löngu færi, nefnilega þá, að svartur maður er allt öðru vísi en hvítur. Í sporum þessa manns mundi ég enga sekt greiða, heldur fara í fangelsi. Ég mundi telja það sérstakan heiður, að verða fyrsti "samviskufanginn" í sögu lýðveldisins.
Alræðisstjórnir eru að því leyti frábrugðnar gamalkunnum, hefðbundnum einræðisstjórnum kónga og keisara, herforingja og annarra pótintáta, að þær byggja völd sín ekki nema að hluta á ofbeldishótun, heldur á trú þegnanna á hugmyndafræði valdhafa. Í fullkomnu alræðisríki þyrfti aldrei að beita þegnana ofbeldi. Allt menntakerfið, allir fjölmiðlar, eru í eigu ríkisins og þar fær enginn að starfa nema hann trúi á kenningar Flokksins. Ritskoðun er því óþörf. Allir eru sammála.
Gott dæmi er Norður-Kórea. Kosningatölur, þar sem valdhafar fá 99,99% atkvæða eru alveg örugglega ófalsaðar. Fólkið trúir í raun og sannleika á "hinn mikla son", elskar hann og dáir og trúir í blindni á hugmyndafræði hans.
Hvers vegna? Jú, svarið er einfalt. Þar er ekkert tjáningarfrelsi.
Í kjölfar nasismans komu upp, einkum í Bandaríkjunum, nýjar kenningar, sem oft eru kenndar við pólitíska rétthugsun, en einnig mætti nefna "öfug-nasisma", ekki aðeins vegna þess að þær voru upphaflega settar til höfuðs nasistum, heldur einnig vegna þess að þeim er í sívaxandi mæli beitt með sama hætti og í alræðisríkjum nasista og kommúnista. Þessar nýju kenningar má draga saman í þrjú boðorð:
1. Allir kynþættir mannanna eru eins.
2. Konur og karlar eru eins.
3. Samkynhneigð og gagnkynhneigð eru eins.
Elsta boðorðið, og það, sem liggur til grundvallar hinum er það fyrsta. Nasistar, og gyðingar sjálfir, trúa því að hvítt fólk með tilteknar trúarskoðanir sé í einhverjum líffræðilegum, vefjafræðilegum skilningi af öðrum "kynþætti" en aðrir hvítir menn. Munurinn er sá að allir geta hætt að vera gyðingar, en enginn getur hætt að vera dverg-svertingi eða Ástralíu-frumbyggi, þótt hann feginn vildi.
Það er mála sannast, að "sannur aríi" er "hávaxinn (eins og Göbbels), grannvaxinn (eins og Göring), og ljóshærður (eins og Hitler)". Kenningar nasista væru beinlínis hlægilegar, ef afleiðingarnar hefðu ekki orðið jafn hrikalegar og raun varð á.
En fyrst hugmyndir nasista voru endaleysa, því ekki að lýsa því yfir einhliða, að allir kynþættir væru eins, síðan karlar og konur, og loks samkynhneigðir og við hinir? Hugmyndin er góð! Og því ekki að beita sömu aðferðum og nasistar og kommúnistar, skipulegri forritun og innrætingu frá blautu barnsbeini (sem ávallt er nefnd "menntun", "uppeldi" eða "fræðsla", sbr. "fræðsla gegn fordómum"), ritskoðun og lögregluvaldi? Tilgangurinn helgar jú meðalið og tilgangurinn er vissulega góður.
Nasistar og kommúnistar trúðu því líka, að tilgangur sinn væri góður. Þeir voru að skapa þúsundáraríki, himnaríki á jörðu.
Það eru ekki mörg ár síðan, að hver sá, sem hefði haldið því fram, að svartir væru eins og hvítir, konur eins og karlar og samkynhneigð og gagnkynhneigð væri eins, hefði beinlínis verið talinn viti sínu fjær, og vel hugsanlega hafnað á geðveikrahæli. Nú er svo komið, að hver sá, sem efast um þessar nýju kenningar getur átt von á allt að tveggja ára dvöl í fangelsi, skv. 233. grein almennra hegningarlaga. Hæstiréttur hefur sýnt það í verki, að hann er til þjónustu reiðubúinn.
Til að framfylgja kenningunni hefur verið stofnuð hálfopinber, þríarma "hugsanalögregla". "Alþjóðahúsið" sér um að enginn efist um að svartir séu eins og hvítir, "Jafnréttisstofa" getur lögsótt hvern þann sem efast um að konur séu nákvæmlega eins og karlar og fullkomnir jafnokar þeirra til allra starfa, og "Samtökin 78" geta sigað lögreglu á hvern þann sem efast um að sambúð tveggja einstaklinga af sama kyni sé "hjónaband".
"Alþjóðahúsið" hefur þegar fengið einn mann dæmdan, og þeir verða fleiri, því svartir munu halda áfram að vera svartir og hvítir hvítir, konur verða áfram konur og hommar verða áfram "hinsegin". Veröldin mun nefnilega halda áfram að vera eins og hún er, ekki eins og við viljum að hún sé.
Lögregla og dómarar munu því fá nóg að starfa um ókomin ár.
Athugasemdir
Þetta er auðvitað allt spurning um í hvaða skilningi menn eru eins og svo aftur ólíkir.
Kýrnar hjá mér eru afskaplega ólíkar á litinn en að flokka þær eftir lit hefur sjaldnast eitthvað upp á sig.
Það er t.d. ekki að sjá að nythæð eða átgeta, júgurhreysti eða aðrir eiginleikar hafi mikið með lit að gera.
Það er þá helst þol gagnvart sólbruna.
Það hversu illa gengur í Suður-Afríku eftir að svartir komust til valda hefur líklega sáralítið að gera með genitíska eiginleika þess fólks. Miklu líklegra er að þar sé menningin að verki. Þessi lýðræðismenning sem til varð í Evrópu og sem kostaði blóð svita og tár, baráttu milli kirkju og kónga og svo lýðsins hafi ýmislegt til síns ágætis þegar kemur að því að reka þjóðríki. Sérstaklega sú menning þar sem germanskir og keltneskir þjóðflokkar lögðu eitthvað til málanna.
Þessari skipulagsmenningu tekst síðan jafnvel upp við illvirki sín eins og afrek, svona ef út í það er farið.
Hvað homma og lesbíur varðar þá er vissulega munur á kynhneigð og sumir telja skaplyndi þ.e. hommar séu alla jafna heldur kvennlegri í skapferli en aðrir karlar og öfugt með lessur. Ég þekki það ekki nógu vel til að geta dæmt um hvort þetta sé rugl eða ekki. En að öðru leiti hefur þessi skipting jafn lítinn tilgang og litaflokkun á kúm. Ekkert bendir til að samkynhneigt fólk séu t.d. eitthvað verri uppalendur en gagnkynhneigt svo dæmi sé tekið.
En þetta meginefni pistils er auðvitað alveg rétt þ.e. hversu tjáningarfrelsið er mikilvægt.
Þetta eru kostugleg dæmi varðandi þá Göbbels, Göring og Hitler hve þeir voru sjálfir langt frá því sem þeir boðuðu.
Mér datt þetta með Hitler í hug nýlega þegar ég sá margdeilda grein Jóns Trausta á Stundinni þar sem hann var að hæðast að Miðflokknum fyrir hversu fáar konur væru þar. Þetta var í kjölfar gagnrýni formanns þess flokks á stefnu Íslandsbanka í jafnréttismálum sérstaklega á fjölmiðlum. Ekki virtist Jóni þessum detta í huga að hann væri að sneyða að sér sjálfum a.m.k. hefur lítið heyrst um að hann ætli að víkja fyrir konu!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 10.11.2019 kl. 10:45
Bjarni minn. Líffræðilegur, vefjafræðilegur munur svartra og hvítra er geysimikill og nær til flestallra eða allra vefja líkamns, stærðar og lögun líffæra og líkmshluta, næmi fyrir ýmsum sjúkdómum o.fl. o.fl. eins og gerist um aðrar stórar útbreiddar tegundir dýra og jurta, sem skiptast í fjölmargar undirtegundir(kynþætta, Þennan mun má t.d. sjá á hunda- eða kattasýningum eða sýningum á rósum eða orkídeum og er grundvallarþáttur hvarvetna í náttúrunni.
Það er beinlínis fáránlegt að halda að húð-eugna- eða háralitur sé það eins sem greini milli t.d. Daaa og dvergsvertingja eða indíána og Ástralíu- frumbyggja. Það er ekki aðeins barnalegt, heldur beinlinis heimskulegt að halda slíku fram.
Vilhjálmur Eyþórsson, 10.11.2019 kl. 12:48
Nú er ég ekki alveg að átta mig á hvert þú ert að fara Eyþór minn, bara þessi flokkun í hvíta og svarta er talsvert ruglandi.
Jú hún virkar stundum ef flokka skal eftir húðlit sérstaklega ef flokkað er í ljósari/dekkri en hvenær þarftu þess?
Í hvaða öðrum tilfellum nýtist manni þessi litaflokkun?
Meira að segja fremur einfalt hugtak eins og "svartur" maður er ekki svo einfalt þegar að er gáð.
Eru Indverjar svartir skv. skilgreiningunni, Indíánar? (Eru Kínverjar hvítir? Þeir eru a.m.k. ljósir á húð.)
Margir nota skilgreininguna einungis um þá sem koma frá Afríku en hverjir koma frá Afríku og hverjir ekki, er ekki dálítið varasamt að ætla að flokka húðlit eftir uppruna?
Frummaðurinn sem fór af stað út úr Afríku var að öllum líkindum dökkur á húð þannig að við erum báðir svo skjannahvítir sem við erum, þannig séð komnir af svertingjum. Erum við þá svertingjar?
Sjálfsagt má finna innan hópa "svartra" misskæða erfðasjúkdóma alveg eins og innan hópa "hvítra".
Nú er fólk flokkað á ýmsan hátt í okkar samfélagi. Hæfileikum, getu, reynslu og því miður kyni (sbr. hugmyndina um jákvæða mismunun) Sérðu fyrir þér að flokkun í hvíta og svarta nýtist á einhvern hátt á þeim vetvangi?
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 10.11.2019 kl. 17:01
Þetta innlegg þitt, Bjarni minn, er þvilík endaleysa að ég sé mér ekki annað fært en að ráðleggja þér eindregið að taka lyfin þín.
Vilhjálmur Eyþórsson, 10.11.2019 kl. 21:44
Þú veldur mér vonbrigðum Villhjálmur ég var að vona að þarna væri eitthvað meira á milli eyrnanna en illa rökstuddar fullyrðingar, sumt af því sem þú hefur skrifað lofaði góðu með það. En það þarf svosem engan kjarnorkuvísindamann til að benda á hrakfarir kommúnismans eða helkulda Suðurskautsins. Verst þegar slæðast innan um eldgamlar bábyljur og hugsanlega hreinn og klár rasismi. Enn þú ert ágætur penni þú mátt eiga það. Þetta er bara svo helvíti grunnt eitthað!
Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 11.11.2019 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.